Internal Reference:
1WH-93NEC94AH
Stórglæsileg fartölva úr AERO línunni frá Gigabyte. Gigabyte AERO X16 sameinar flotta og netta hönnun, öflugan vélbúnað og nýjustu gervigreindartækni í einni fjölhæfri fartölvu. Með AMD Ryzen AI 7 örgjörva, NVIDIA GeForce RTX 5070 skjákorti og Copilot+ PC stuðningi hentar hún vel fyrir vinnu, nám, leikjaspilun, sköpun og daglega notkun.
GIGABYTE Control Center og GiMATE AI Agent hjálpa til við að stilla afköst, rafhlöðunotkun, hljóð, næði og kælingu eftir notkun. Hægt er að velja mismunandi AI stillingar fyrir betri afköst, hljóðlátari vinnslu eða lengri rafhlöðuendingu. Vélin er einnig með Copilot takka á lyklaborðinu svo auðvelt er að kalla fram gervigreindaraðstoð í Windows.
Gigabyte AERO X16 kemur með 16" WQXGA / QHD+ IPS skjá með 2560 × 1600 upplausn, 165Hz endurnýjunartíðni, 3ms viðbragðstíma, 100% sRGB litasviði og 400 nits birtustigi. Skjárinn er í 16:10 hlutföllum og nýtir þunnan ramma vel, sem gerir vélina frábæra fyrir bæði vinnu og afþreyingu. FHD Windows Hello IR vefmyndavél, innbyggðir array-hljóðnemar, Dolby Atmos hljóðkerfi, WiFi 6E og Bluetooth tryggja síðan góða upplifun í netfundum, streymi og daglegri notkun.
- AMD Ryzen AI 7 350 8-kjarna / 16-þráða örgjörvi með allt að 5GHz Turbo hraða
- AMD Ryzen AI XDNA gervigreindar NPU með allt að 50 TOPS
- Copilot+ PC fartölva með nýjustu AI möguleikum frá Microsoft
- GIGABYTE GiMATE AI Agent fyrir snjallari notkun og stillingar
- Snjallar AI stillingar fyrir afköst, hljóð, næði, rafhlöðu og kælingu
- 16GB DDR5 vinnsluminni með tveimur SO-DIMM raufum
- 2x raufar fyrir allt að 64GB vinnsluminni Dual-Channel
- 1TB NVMe PCIe 4.0 M.2 SSD diskur
- Tvær M.2 raufar fyrir aukið geymslupláss
- 16" IPS WQXGA / QHD+ 2560 × 1600 skjár með 16:10 skjáhlutfalli
- 165Hz endurnýjunartíðni og 3ms viðbragðstími
- 100% sRGB litasvið og 400 nits birtustig
- TÜV Rheinland Low Blue Light tækni fyrir þægilegri skjánotkun
- Pantone vottaður skjár fyrir nákvæma og áreiðanlega liti
- NVIDIA GeForce RTX 5070 8GB GDDR7 skjákort
- RTX AI og NVIDIA Studio stuðningur fyrir leiki, sköpun og AI vinnslu
- MUX Switch fyrir betri afköst eða lengri rafhlöðuendingu
- Einnig AMD Radeon 860M skjákjarni innbyggður í örgjörva
- WiFi 6E AX 2x2 þráðlaust net og Bluetooth 5.2 tenging
- FHD 1080p IR Windows Hello vefmyndavél
- Innbyggðir array-hljóðnemar fyrir skýrari netfundi og myndsímtöl
- Dolby Atmos hljóðkerfi með Smart Amp tækni
- USB-C 4.0 tengi með DisplayPort 1.4 og Power Delivery 3.0
- 2x USB 3.2 Gen1, USB 2.0, HDMI 2.1 og 1GbE LAN
- 76Wh rafhlaða með allt að 14 klst. rafhlöðuendingu
- Styður PD 3.0 hraðhleðslu, allt að 50% hleðsla á 30 mínútum
- 150W straumbreytir fylgir með
- WINDFORCE Infinity kæling með 3D VortX Air-Channeling tækni
- AI kæling fyrir hljóðlátari vinnslu í léttari verkefnum
- 1-Zone RGB baklýst lyklaborð með Copilot takka
- 1,7mm key travel fyrir þægilega innsláttarupplifun
- Icy Touch hönnun dregur loft í gegnum lyklaborð og heldur yfirborði svalara
- Nett og sterkbyggð hönnun, aðeins um 1,9 kg
- Þunn hönnun, frá 16,75 mm að þykkt
- Windows 11 Pro stýrikerfi
Copilot+ PC fartölva
allt að 50 billjón ai npu aðgerðir á sekúnduBúin sérstökum Copilot-hnappi á lyklaborðinu og stuðningi við nýjustu Windows 11 Copilot+ gervigreindareiginleikana sem vinna beint í tölvunni:
Recall Þitt eigið ljósmyndaminni. Finndu hvað sem er í sögunni þinni án þess að senda gögn í skýið – allt geymt af öryggi í tölvunni.
Click to Do Birtir flýtiaðgerðir út frá því sem er á skjánum. Breytir, endurskrifar eða vinnur með texta og myndir með örfáum smellum.
Merkingarleit (Semantic Search) Finnur skrár út frá lýsingu á innihaldi (t.d. „Excel skjalið með grillveislunni“) án þess að muna nákvæmt skráarheiti.
AI-aðstoð í Stillingum Stjórnaðu tölvunni með einföldum skipunum eins og „gera músarbendilinn stærri“ og tölvan framkvæmir það fyrir þig.
Cocreator Teiknaðu einfalda skissu og gervigreindin umbreytir henni í fullkomna mynd eða listaverk í rauntíma.
Restyle & Super Resolution Breyttu stíl mynda á listrænan hátt og bættu gæði eldri eða lágupplausnar mynda með gervigreind.
Live Captions Lifandi skjátextar í rauntíma – meðal annars á íslensku og mörgum öðrum tungumálum.
Windows Studio Effects Fjarlægðu bakgrunn, lagfærðu augnsamband, hreinsaðu raddir og bættu fjarfundi með gervigreind í rauntíma.
Fylgihlutir og hliðstæðar vörur
You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.
We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.