Skip to Content
Verslun Tölvutek í Mörkinni 3

Um Tölvutek

Tölvutek var stofnað árið 2006 og er umboðs- og dreifingaraðili fyrir mörg af stærstu vörumerkjum heims á sviði tölvu- og raftækja. Þar á meðal eru ADATA, Allsop, Arozzi, Arctic, Amazfit, BenQ, Brother, Ducky Channel, De-Lock, Energizer Mobile, Gainward, GIGABYTE, Glorious, Inter-Tech, Lian Li, Nothing, Metz, McAfee, Mikamax, Multibrackets, PocketBook, Rivacase, Satzuma, Seasonic, Shelly, Strong, Telefunken, Thermaltake, Turtle Beach, TP-Link, Trust, Wonlex og Zowie by BenQ.

Tölvutek er einnig söluaðili fyrir meðal annars Acer, Apple, Canon, EPOS, Sony og Lenovo.

Árið 2025 opnaði Tölvutek nýja heimilistækjadeild og bætti við vörumerkjum á borð við Girmi, G3 Ferrari, Resto og Tesla heimilis- og raftæki. Tölvutek er jafnframt viðurkenndur söluaðili fyrir SharkNinja og Bosch.

Jafnlaunastaðfesting Tölvutek

Jafnlaunastaðfesting

Tölvutek hefur hlotið jafnlaunastaðfestingu Jafnréttisstofu samkvæmt lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

Hjá Tölvutek er jafnréttis- og jafnlaunakerfi sem nær til alls starfsfólks og byggir á jafnlaunastefnu fyrirtækisins. Markmiðið er að tryggja jafnrétti og jafna stöðu kynjanna og nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsfólks til fulls án kynbundinnar mismununar.

Lesa jafnlaunastefnu
Microsoft Partner

Samstarf og þjónusta

Tölvutek er Microsoft Service Partner, Google Cloud & Education Partner og Intel Gold Technology Provider. Í samstarfi við Ofar er Tölvutek einnig þjónustumiðstöð á Íslandi fyrir Lenovo, Acer, Packard Bell, BenQ, Ducky, GIGABYTE, Thermaltake, Trust, Wonlex, Zowie by BenQ og fjölda annarra vörumerkja. Tölvutek var fyrsta fyrirtækið á Íslandi til að verða viðurkennt sem Google Cloud & Education Partner, sem gerir fyrirtækinu kleift að þjónusta og selja Chromebook fartölvur til skóla, fyrirtækja og einstaklinga.