Internal Reference:
3SD02
Energizer 20V hjámiðjujuðari er öflugur og fjölhæfur juðari fyrir slípun á tré, málmi, plasti og máluðum flötum. Verkfærið hentar vel fyrir bæði grófari slípun og fínni frágang á heimilinu, verkstæðinu eða við framkvæmdir.
Juðarinn er með 6 stillanlega hraða frá 5000 til 10000 rpm, sem gerir auðvelt að aðlaga afköstin að verkefninu hverju sinni. 125 mm púði fyrir slípiskífur auðveldar skjót skipti og er hannaður fyrir skífur með ryksogsgötum, sem hjálpa til við að draga úr ryki við vinnu.
Innbyggt ryksog og rykpoki draga úr ryki við vinnu og hjálpa til við að halda vinnusvæðinu hreinna. Með fylgja 10 slípiskífur í mismunandi grófleikum, 4x60GR, 3x80GR og 3x120GR, svo hægt sé að hefjast handa strax. Juðarinn er samhæfur við Energizer 20V 2Ah og 4Ah rafhlöður. Rafhlaða fylgir ekki með.
- 20V hjámiðjujuðari fyrir fjölbreytta slípun
- 6 hraðastillingar frá 5000 til 10000 rpm
- Hentar fyrir tré, málm, plast og málaða fleti
- 125 mm púði fyrir slípiskífur
- Innbyggt ryksog og rykpoki
- 10 slípiskífur fylgja með
- Samhæfur við Energizer 20V 2Ah og 4Ah rafhlöður
- Rafhlaða fylgir ekki með
Fylgihlutir og hliðstæðar vörur
You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.
We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.