Skip to Content

Lenovo Yoga 7 2in1 AI+ fartölva 14" OLED FHD+ Ryzen AI-I7-350 16/512GB, W11, ísl. lykl., penni, 3ár, nps, Tidal Teal

199,990 kr 199,990 kr


Internal Reference: 83JR00BYIW

Ný kynslóð fartölva með hröðum AI NPU, sjálfstæðum AI gervigreindar örgjörva innbyggðan í AMD Ryzen AI örgjörvann sem skilar allt að 50 billjón AI aðgerðum á sekúndu sem er mikilvæg viðbót í dag þar sem hjálparforrit, orðaskilningur, myndvinnsla, tónlistarvinnsla, forrit, leikir og önnur vinnsla reiðir sig sífellt meira á AI en útreikningar með AI NPU í tölvunni þinni skila meiri hraða og öryggi en tölvur sem reiða sig á internet fyrir sambærilega vinnslu.


Stílhrein og fjölhæf 2in1 fartölva frá Lenovo sem hentar jafnt fyrir vinnu, nám og afþreyingu. Yoga 7 býður upp á sveigjanlega hönnun sem gerir þér kleift að nota hana sem hefðbundna fartölvu eða spjaldtölvu - allt eftir þínum þörfum.


14" FHD+ OLED snertiskjárinn skilar skýrri og bjartari mynd sem hentar vel fyrir daglega notkun, vafra og streymi. Vélin er knúin af AMD Ryzen AI 7 350 örgjörva með AI stuðningi, ásamt 16GB vinnsluminni og 512GB SSD sem tryggir hraða og áreiðanlega upplifun.

  • AMD Ryzen AI 7 350 8-kjarna 16-þráða 5.0GHz örgjörvi með allt að 66 TOPS
    • Sérhæfður Ryzen AI NPU gervigreindar örgjörvi með allt að 50 TOPS
    • Copilot+ PC fartölva með nýjustu AI gervigreindar möguleikum frá Microsoft
  • 16GB LPDDR5x 6400MHz hraðvirkt vinnsluminni
  • 512GB NVMe PCIe 4.0x4 M.2 SSD geymsludiskur
  • 14" FHD+ OLED 360° 2in1 glossy gler anti-fingerprint OGM fjölsnertiskjár
    • 100% DCI-P3 litaskali, 600nits, Dolby Vision og DisplayHDR TrueBlack 500
    • Sveigjanleg 360° hönnun - fartölva og spjaldtölva í einu!
    • Lenovo Yoga Pen snertipenni fylgir með!
  • Innbyggt Wi-Fi 6E AX 2x2 og Bluetooth þráðlausar tengingar
  • QHD IR vefmyndavél með Windows Hello andlitsgreiningu
    • Kemur með fjórum hljóðnemum með noise cancelling
  • Quad 4.0 Smart Amp hátalarar með Dolby Atmos hljóðkerfi þar af 2 Woofers!
  • USB-C tengi með PD 65W hraðhleðslu og DisplayPort stuðningi
    • USB-A tengi, HDMI og 3.5mm heyrnartólatengi
  • 70Wh rafhlaða með allt að 22 klukkustunda rafhlöðuending
    • Athugið! USB-C hleðslutæki fylgir ekki með. Sjá tengdar vörur
    • Styður 65W USB-C Power Delivery hraðhleðslu
  • Baklýst íslenskt lyklaborð og nákvæmur Mylar fjölsnertiflötur
  • Fislétt öll úr anodized sandblöstuðu áli, aðeins 1,42kg og 15,45mm þunn!
    • Vönduð álbygging sem sameinar léttleika og styrk
  • Windows 11 Home stýrikerfi með Copilot+PC möguleikum
    • Copilot+PC hnappur á lyklaborði, AI gervigreindar aðstoðarmaður!
    • Snjall AI eiginleikar fyrir betri notendaupplifun
  • Kemur með 3ja ára ábyrgð!

Athugið! Hleðslutæki fylgir ekki með. Styður allt að 65W USB-C PD hraðhleðslu, sjá tengdar vörur.

Copilot+ PC fartölva

allt að 50 billjón ai npu aðgerðir á sekúndu

Búin sérstökum Copilot-hnappi á lyklaborðinu og stuðningi við nýjustu Windows 11 Copilot+ gervigreindareiginleikana sem vinna beint í tölvunni:

Recall Þitt eigið ljósmyndaminni. Finndu hvað sem er í sögunni þinni án þess að senda gögn í skýið – allt geymt af öryggi í tölvunni.

Click to Do Birtir flýtiaðgerðir út frá því sem er á skjánum. Breytir, endurskrifar eða vinnur með texta og myndir með örfáum smellum.

Merkingarleit (Semantic Search) Finnur skrár út frá lýsingu á innihaldi (t.d. „Excel skjalið með grillveislunni“) án þess að muna nákvæmt skráarheiti.

AI-aðstoð í Stillingum Stjórnaðu tölvunni með einföldum skipunum eins og „gera músarbendilinn stærri“ og tölvan framkvæmir það fyrir þig.

Cocreator Teiknaðu einfalda skissu og gervigreindin umbreytir henni í fullkomna mynd eða listaverk í rauntíma.

Restyle & Super Resolution Breyttu stíl mynda á listrænan hátt og bættu gæði eldri eða lágupplausnar mynda með gervigreind.

Live Captions Lifandi skjátextar í rauntíma – meðal annars á íslensku og mörgum öðrum tungumálum.

Windows Studio Effects Fjarlægðu bakgrunn, lagfærðu augnsamband, hreinsaðu raddir og bættu fjarfundi með gervigreind í rauntíma.


You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.

We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.

Nýlega skoðað

 
Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.