Skip to Content

Gigabyte Gaming A16 Pro leikjafartölva 16" QHD+165 i7-240H 32GB 1TB RTX5080 W11, svört

499,990 kr 499,990 kr


Internal Reference: DYH-G5NECC4SH

Stórkostleg og örþunn leikjafartölva úr Gaming A16 Pro leikjalínunni frá Gigabyte! Leikjafartölvan er hlaðin öflugum vélbúnaði og nýjungum eins og GiMATE AI Agent hjálparforritinu sem hjálpar til við að stilla afköst, rafhlöðunotkun, hljóð, næði og kælingu eftir notkun. Með AI Power Gear og AI Boost stillingum er auðvelt að velja á milli meiri afkasta, hljóðlátari vinnslu eða lengri rafhlöðuendingar eftir því hvað þú ert að gera.

Gigabyte Gaming A16 Pro er mögnuð leikjavél með Intel Core 7 240H örgjörva og öflugu NVIDIA GeForce RTX 5080 16GB GDDR7 leikjaskjákorti. Vélin kemur með 16" IPS QHD+ skjá með 165Hz endurnýjunartíðni, 3ms viðbragðstíma, 100% sRGB litasviði og 400 nits birtustigi. Skjárinn er í 16:10 hlutföllum og þunnur rammi nýtir skjáflötinn vel fyrir leiki, vinnu og afþreyingu.

WiFi 6E 2x2 þráðlaust net, Bluetooth 5.2 og 1GbE LAN tryggja hraðar og stöðugar tengingar. FHD 1080p IR Windows Hello vefmyndavél með innbyggðum array hljóðnema hentar vel fyrir netfundi og myndsímtöl. Dolby Atmos hljóðkerfi, MUX Switch, 1-Zone RGB baklýst lyklaborð og WINDFORCE Infinity EX kæling gera vélina að öflugri og fjölhæfri leikjafartölvu fyrir bæði leiki og daglega notkun.

  • Intel Core 7 240H 10-kjarna 16-þráða örgjörvi með allt að 5,2GHz Turbo hraða
  • NVIDIA GeForce RTX 5080 Laptop GPU 16GB GDDR7 leikjaskjákort
    • RTX AI og NVIDIA tækni fyrir leiki, sköpun og gervigreindarvinnslu
    • MUX Switch fyrir betri afköst eða lengri rafhlöðuendingu
  • GIGABYTE GiMATE AI Agent fyrir snjallari notkun og stillingar
    • AI Privacy, AI Audio, AI Voice og fleiri snjallar stillingar
  • 32GB LPDDR5x 5600MHz vinnsluminni
  • 1TB NVMe PCIe Gen4x4 M.2 SSD diskur
    • 2x PCIe Gen4x4 M.2 raufar fyrir aukið geymslupláss
    • Styður allt að 4TB PCIe NVMe M.2 SSD geymslupláss
  • 16" IPS QHD+ WQXGA 2560x1600 skjár með 16:10 skjáhlutfalli
    • 165Hz endurnýjunartíðni og 3ms viðbragðstími
    • 100% sRGB litasvið og 400 nits birtustig
    • Þunnur skjárammi fyrir stærri skjáupplifun
  • FHD 1080p IR Windows Hello vefmyndavél
    • Innbyggður array hljóðnemi fyrir netfundi og myndsímtöl
  • Yfirgrípandi Dolby Atmos hljóðkerfi með 2x 2W hátölurum
  • WiFi 6E 802.11ax 2x2 þráðlaust net og Bluetooth 5.2 þráðlausar tengingar
  • 1GbE Ethernet LAN nettengi fyrir stöðuga nettengingu
  • USB-C 3.2 Gen1 dokkutengi með DisplayPort 1.4 og Power Delivery 3.0
    • 2x USB-A 3.2 Gen1, USB-A 2.0, HDMI 2.1 og 3,5 mm hljóðtengi
  • 1-Zone RGB baklýst lyklaborð með allt að 1,7 mm key travel
    • Copilot takki á lyklaborði fyrir Windows AI gervigreindaraðstoð
  • WINDFORCE Infinity EX kæling fyrir öfluga og stöðuga vinnslu
    • AI kæling fyrir hljóðlátari vinnslu í léttari verkefnum
  • Glæsileg hönnun og aðeins um 2,3 kg að þyngd!
  • 76Wh rafhlaða, allt að 10 klukkustunda rafhlöðuending
    • 240W straumbreytir með DC Barrel tengi fylgir með
  • Windows 11 Home stýrikerfi með Copilot og GiMATE AI Agent hjálparforrit

You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.

We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.

Nýlega skoðað

 
Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.