Skip to Content

Sobczyk Slushie krapvél, 6 kerfi, 2L tankur, Svört

39,990 kr 39,990 kr


Internal Reference: 1307039

Að baki Sobczyk vörumerkinu stendur danski stjörnukokkurinn Casper Sobczyk. Hann er þekkt andlit úr dönsku sjónvarpi og rekur auk þess hinn verðlaunaða veitingastað Capa í Kaupmannahöfn. Vörulína hans endurspeglar ástríðu hans fyrir hágæða og nýstárlegum lausnum fyrir heimiliseldhúsið.


Gerðu dásamlega slush drykki heima með Sobczyk krapvélinni. Hún er með fimm forrit, 2 lítra geymslugetu og öflugum 200W mótor sem tryggir að blöndur frjósa á um það bil 30 til 60 mínútum.


Sobczyk krapvélin gerir þér kleift að útbúa ískalda og ljúffenga slush drykki á einfaldan hátt. Hún er fullkomin fyrir sumarveislur, barnaafmæli, saumaklúbbinn, bústaðarferðina eða hressandi drykk á heitum degi. Með 2 lítra tank og fimm forritum færðu alltaf mjúka og jafna áferð, hvort sem þú gerir hefðbundinn slush, mjólkurhristing eða ískalda blöndudrykki.

  • Fimm forrituð prógrömm: Slush, Spiked Slush, Frappé, Milkshake og Rinse
  • Klárar frystun á 30 til 60 mínútum eftir magni og vökvatýpu
  • 2 lítra geymslugeta sem hentar fyrir nokkra drykki í einu
  • Auðveld notkun með skýru stjórnborði
  • Þægileg úthelling með handfangi
  • Auðvelt að þrífa með Rinse prógrammi og lausum hlutum sem má setja í efri grind uppþvottavélar án heitrar þurrkunar

Notkunarleiðbeiningar:

  • Ekki nota ís, ísmola, frosna ávexti eða heita vökva
  • Vökvi þarf að innihalda minnst fjögur prósent sykur til að frjósi rétt
  • Áfengi í blöndu ætti að vera á bilinu fimm til sextán prósent
  • Vélin þarf að standa upprétt í tvo tíma fyrir fyrstu notkun til að tryggja eðlilega hringrás kælimiðils

You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.

We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.

Nýlega skoðað

 
Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.