Internal Reference:
XSC8B30BD0
Trevi XSC 8B30BD er þráðlaus hátalari sem sameinar kraftmikið hljóð, snjalla stjórnun og multi-room tengimöguleika. Hátalarinn hentar vel bæði til daglegrar notkunar heima og þegar þú vilt dreifa tónlist um stærra rými.
Tveir hátalarar ásamt tveimur passive bassaeiningum skila djúpum bassa og skýrum hljómi. Hátalarinn skilar 2×10W hljóðafli sem tryggir skýra og kraftmikla hljóðupplifun, og með þremur fyrirfram stilltum hljóðstillingum er auðvelt aðlaga hljóðið að mismunandi tónlistarstílum.
Bluetooth 5.3 tenging tryggir stöðuga þráðlausa spilun úr snjallsíma, spjaldtölvu eða öðrum samhæfum tækjum. Multi-room virkni gerir þér kleift að tengja allt að 100 hátalarum saman og spila sömu tónlist samtímis í mörgum herbergjum, þannig að tónlistin fylgir þér um heimilið eða dreifist jafnt yfir stærra svæði. Snertiskjár veitir þægilega stjórn á spilun, hljóðstyrk og stillingum, auk þess sem rafhlöðustaða birtist á skjánum.
Hátalarinn er einnig með innbyggt útvarp og klukku sem hægt er að nota sem vekjaraklukku. Hann getur einnig spilað MP3 skrár beint af USB-lykli eða MicroSD korti. IPX5 vatnsvörn ver tækið gegn skvettum og USB-C endurhlaðanleg rafhlaða tryggir langan spilunartíma og þægilega hleðslu.
- Multi-room tenging
- Tengir allt að 100 samhæfa hátalara saman
- Spilar sömu tónlist samtímis í mörgum herbergjum
- 2×10W hljóðafl með passive bassaeiningum
- Bluetooth 5.3 þráðlaus tenging
- 2" snertiskjár fyrir stjórnun og stillingar
- MP3 spilun frá USB-lykli og MicroSD korti
- Innbyggt útvarp og klukka með vekjaraklukku
- IPX5 vatnsvörn gegn skvettum
- Endurhlaðanleg rafhlaða með USB-C hleðslu
Fylgihlutir og hliðstæðar vörur
You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.
We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.