Internal Reference:
RZ04-03780100-R3M1
Razer Barracuda Pro eru öflug þráðlaus heyrnartól frá Razer, hönnuð fyrir bæði leikjaspilun og daglega notkun. Þau tengjast með 2.4 GHz Razer HyperSpeed þráðlausri tengingu eða Bluetooth og virka með leikjatölvum, farsímum og öðrum samhæfðum tækjum. Mjúkir eyrna- og höfuðpúðar úr memory foam með gervileðursáklæði tryggja þægilega og notalega notkun.
Razer SmartSwitch Dual Wireless gerir heyrnartólunum kleift að vera tengd við bæði 2.4 GHz og Bluetooth samtímis og skipta á milli þeirra eftir þörfum. Þau geta sjálfkrafa tekið við símtölum úr tengdu Bluetooth tæki og fara síðan aftur yfir í leikjahljóð. Einnig er hægt að slökkva á innhringingum með Do Not Disturb stillingu í Razer Audio appinu eða skipta handvirkt milli tengimáta með sérstökum hnappi.
Hljóðeinangrunin gerir þér kleift að draga úr umhverfishljóðum bæði heima og á ferðinni. Hægt er að stilla styrkinn í tíu þrepum í Razer Audio appinu. Einnig er hægt að virkja ambient mode sem hleypir inn umhverfishljóði án þess að taka heyrnartólin af.
Tveir beamforming MEMS hljóðnemar skila skýrri raddupptöku bæði innandyra og utandyra. Þeir eru hannaðir til að draga úr titringi og hávaða og tryggja skýra rödd hvar sem þú ert.
Razer TriForce Bio-cellulose 50mm segulreklar skila skýrum hátónum, nákvæmum miðtónum og djúpum bassa. Þunnar Bio-cellulose himnur draga úr truflunum og bæta heildarhljóðgæði. Heyrnartólin eru létt, um 340g, og rafhlaðan endist allt að 40 klukkustundir á einni hleðslu.
- Razer TriForce Bio-cellulose 50mm segulreklar með 20Hz – 20.000Hz tíðnisvið
- Hljóðeinangrandi lokuð þráðlaus heyrnartól
- Bio-cellulose himnur draga úr truflunum og bæta hljóðgæði
- USB-C HyperSpeed móttakari, virkar með PlayStation, PC, Mac og Nintendo Switch.
- Einnig hægt að tengjast með Bluetooth 5.2
- Styður samtímis 2.4 GHz og Bluetooth hljóð
- THX Achromatic Audio Amplifier
- Skilar hreinni hljóðgæðum með lágmarks truflun og suði.
- Tryggir vítt og lifandi hljóðsvið í leikjum, tónlist og kvikmyndum.
- Razer SmartSwitch Dual Wireless
- Tengist 2.4 GHz HyperSpeed og Bluetooth samtímis
- Skiptir sjálfkrafa á milli leikjahljóðs og símtala
- Tekur símtöl úr tengdu Bluetooth tæki án aðgerða
- Do Not Disturb stilling lokar á innhringingar í appinu
- Hægt að skipta handvirkt milli 2.4 GHz og Bluetooth
- Hybrid virk hljóðeinangrun
- Dregur úr utanaðkomandi hávaða bæði heima og á ferð
- Hægt að stilla styrkleikann í allt að tíu þrepum
- Ambient mode hleypir inn umhverfishljóðum
- Beamforming MEMS hljóðnemar
- Tveir innbyggðir hljóðnemar tryggja skýra röddupptöku
- Hávaðadeyfing stillanleg fyrir notkun bæði innandyra og utandyra
- MEMS‑tækni minnkar áhrif titrings og hávaðamikils umhverfis
- Þægilegir eyrna‑ og höfuðpúðar úr memory foam með gervileðursáklæði
- Heyrnartólin eru einungis 340g, þæginleg í lengri notkun
- Allt að 40 klst. rafhlöðuending á einni hleðslu
- USB‑C hleðslukapall
- USB‑C HyperSpeed móttakari fyrir 2.4 GHz þráðlausa tengingu
- USB‑A í USB‑C framlenging fyrir móttakarann
- Burðartaska til að vernda og geyma heyrnartólin
Fylgihlutir og hliðstæðar vörur
You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.
We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.