Skip to Content

Kodak RWF-108H 10" WiFi stafrænn myndarammi með rafhlöðu, sjávarblár á viðarstandi

19,990 kr 19,990 kr


Internal Reference: KODAKRWF108H-OB

Lúxus 10" þráðlaus myndarammi frá Kodak með álramma og snúningsfæti í viðarlit, með innbyggða rafhlöðu svo hægt er að sýna allar myndirnar úr sumarfríinu án þess að vera tengdur í rafmagn, rammin er með þráðlaust WiFi neti svo hægt er að senda á hann myndir beint úr fríinu á ströndinni eða hvar sem er, þá er hann með mikið geymslupláss þar sem hægt er að hlaða inn uppáhaldsmyndum en einnig lesa myndir af minniskortum og minnislyklum. Myndaramminn sýnir ljósmyndir í bestu mögulegum gæðum en getur einnig spilað hreyfimyndir með hljóði, þá er hægt að spila undirtónlist með myndaskoðun.


Innbyggð veðurstöð sækir upllýsingar um veðrið þráðlaust yfir internetið þar sem ramminn er staddur og birtir nýjustu veður upplýsingar sem og veðrið á morgun. Þá er ramminn með dagatal, klukku og vekjaraklukku innbyggða.

  • Kodak 10" WiFi stafrænn myndarammi með rafhlöðu, sjávarblár
  • 10’’ IPS HD+ 1280x800 hágæða snertiskjár
  • WiFi 5 þráðlaust net - Deildu með vinum og fjölskyldu beint úr fríinu
  • 32GB geymslupláss og raufar fyrir SD/SDHC kort og USB lykil
  • Sýnir myndir, myndbönd með hljóði og spilar tónlist í bakgrunn
  • Veðurspá dagsins uppfærist sjálfvirkt yfir þráðlaust net
  • Dagatal getur verið sjálfstætt á skjá eða með þinni myndaseríu
  • Innbyggð klukka og vekjaraklukka
  • 3800mAh Lithium hleðslurafhlaða með allt að 5 tíma notkun

Með Kodak Classic Frame appinu geturðu notað WiFi til að senda myndir og myndbönd til rammans, hvar sem þú ert í heiminum. Tilkynning birtist á rammanum þegar einhver hefur sent þér mynd eða myndband. Fallegustu stundir lífsins deilt strax með fjölskyldu og vinum — hvað gæti verið betra? Kodak RCF-108H Wi-Fi myndaramminn er fullkomlega tengdur og passar vel inn í heimilið með nútímalegri hönnun.

You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.

We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.

Nýlega skoðað

 
Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.