Skip to Content

Acer Swift 14 AI+ fartölva, 14" OLED FHD+ Ultra 7-258V AI 32GB 1TB W11, Stál grá

199,990 kr 199,990 kr


Internal Reference: NX.J2JED.006

Ný kynslóð fartölva með hröðum AI NPU, sjálfstæðum AI gervigreindar örgjörva sem skilar allt að 47 billjón AI aðgerðum á sekúndu sem er mikilvæg viðbót í dag þar sem hjálparforrit, orðaskilningur, myndvinnsla, tónlistarvinnsla, forrit, leikir og önnur vinnsla reiðir sig sífellt meira á AI en útreikningar með AI NPU í tölvunni þinni skila meiri hraða og öryggi en tölvur sem reiða sig á internet fyrir sambærilega vinnslu.


Ótrúleg ný kynslóð öflugri, þynnri og léttari lúxusfartölva frá Acer með 14.5" OLED FHD+ skjá sem nær ramma á milli með 16:10 hlutföllum, frábært DTS:X Ultra Dual Front Facing hljóðkerfi og Acer PurifiedVoice 2.0 tækni sem bætir AI míkrafón sem lokar á óþarfa hljóðtruflarnir eins og bakgrunnshljóð. QHD HDR IR Windows Hello vefmyndavél með einstakri Blue Glass linsu og Acer PurifiedView 2.0 AI tækni sem sérstillir myndgæði og skerpu í rauntíma. Tvö USB4 Thunderbolt dokkutengi og USB 3.2 tengi. Lúxusfartölva öll úr áli, aðeins 1,28kg og 14,9mm þunn!


Þú getur auðveldlega virkjað gervigreindarbætta Windows Copilot+ aðstoðarmanninn með Copilot takkanum á lyklaborðinu. Vefsímtöl eru einnig afgreidd vel þökk sé QHD vefmyndavélinni og dual hljóðnemanum með AI Noise Reduction og PurifiedVoice™ tækni.

  • Intel Core Ultra 7-258V AI, 8-kjarna 8-þráða, 4.8GHz Turbo örgjörvi, 115 Overall TOPS
    • Sérhæfður Intel AI Boost NPU gervigreindar örgjörvi með allt að 47 TOPS
    • Copilot+PC fartölva með nýjustu AI gervigreindar möguleikum frá Microsoft
    • Intel Arc Graphics 140V 8-kjarna Ray-Tracing skjákjarni með 64 GPU TOPS
  • 32GB LPDDR5x 8533MHz Dual Channel vinnsluminni
  • 1TB NVMe PCIe Gen 4.0 M.2 hraðvirkur SSD diskur
  • 14.5" FHD+ OLED VESA Certified DisplayHDR TrueBlack500 CineCrystal skjár
    • 400nits birtustig, 16:10, 100% Adobe/DCI-P3 og 90Hz endurnýjunartíðni
    • TÜV Rheinland EyeSafe Certified 2.0 og Low Blue Light blágeislavörn
  • Killer 1750I Wi-Fi 7 BE Dual-Band 2x2 þráðlaust net og Bluetooth 5.4
  • DTS:X Ultra Audio hljóðkerfi með Dual Acer TrueHarmony™ hátalara
  • QHD 1440px HDR IR Windows Hello AI vefmyndavél með Privacy shutter
    • Acer PurifiedView 2.0 AI tækni sem sérstillir myndgæði og skerpu í rauntíma
    • Acer PurifiedVoice 2.0 tækni bætir AI míkrafón sem lokar á bakgrunnshljóð
  • Baklýst lyklaborð, OceanGlass fjölsnertimús og fingrafaraskanni
    • Copilot takki á lyklaborði, AI gervigreindar aðstoðarmaður!
  • 2x USB 3.2 og 2x USB4-C/Thunderbolt4 PD3.0 65W dokkutengi
  • Allt að 26 klukkustunda rafhlöðuending og 65W hraðhleðsla
    • AcerSense tækni sem fínstillir rafhlöðuendingu, geymslu ofl.
  • Öll úr áli fislétt aðeins 1.28kg og örþunn aðeins 14,9mm!!!
    • Höggvarin með MIL-STD-810 military staðal
  • Windows 11 Home stýrikerfi með Copilot+PC möguleikum
    • Copilot+PC hnappur á lyklaborði, AI gervigreindar aðstoðarmaður!

Copilot+ PC fartölva

allt að 47 billjón ai aðgerðir á sekúndu

Búin sérstökum Copilot-hnappi á lyklaborðinu og stuðningi við nýjustu Windows 11 Copilot+ gervigreindareiginleikana sem vinna beint í tölvunni:

Recall Þitt eigið ljósmyndaminni. Finndu hvað sem er í sögunni þinni án þess að senda gögn í skýið – allt geymt af öryggi í tölvunni.

Click to Do Birtir flýtiaðgerðir út frá því sem er á skjánum. Breyttu, endurskrifaðu eða unnið með texta og myndir með örfáum smellum.

Merkingarleit (Semantic Search) Finnur skrár út frá lýsingu á innihaldi (t.d. „Excel skjalið með grillveislunni“) án þess að muna nákvæmt skráarheiti.

AI-aðstoð í Stillingum Stjórnaðu tölvunni með einföldum skipunum eins og „gera músarbendilinn stærri“ og tölvan framkvæmir það fyrir þig.

Cocreator Teiknaðu einfalda skissu og gervigreindin umbreytir henni í fullkomna mynd eða listaverk í rauntíma.

Restyle & Super Resolution Breyttu stíl mynda á listrænan hátt og bættu gæði eldri eða lágupplausnar mynda með gervigreind.

Live Captions Lifandi skjátextar í rauntíma – meðal annars á íslensku og mörgum öðrum tungumálum.

Windows Studio Effects Fjarlægðu bakgrunn, lagfærðu augnsamband, hreinsaðu raddir og bættu fjarfundi með gervigreind í rauntíma.

You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.

We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.

Nýlega skoðað

 
Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.