Internal Reference:
NX.JL1ED.001
Ný kynslóð fartölva með hröðum AI NPU, sjálfstæðum gervigreindarhraðli sem skilar allt að 50 billjón gervigreindaraðgerðum á sekúndu. Gervigreindarvinnsla beint í tölvunni getur aukið hraða og öryggi við notkun hjálparforrita, myndvinnslu, samskipti og önnur verkefni sem nýta gervigreind, án þess að öll vinnslan þurfi að fara fram í gegnum internetið.
Glæsileg ný kynslóð þynnri og léttrari Aspire 14 AI fartölva frá Acer með 14" FHD+ IPS 120Hz skjá í 16:10 hlutföllum. Acer TrueHarmony hljóðkerfi og Acer PurifiedVoice tækni hjálpa til við að bæta hljóðgæði í netfundum og draga úr óþarfa bakgrunnshljóði. FHD IR Hello AI vefmyndavél þekkir þig og opnar tölvuna, er einnig með Privacy Shutter myndavélarloki og hentar vel fyrir myndsímtöl. þá er hún hlaðin nýjustu tengjum eins og tvö USB4 Thunderbolt Dokku tengi. Nett Anodized álhönnun og baklýst lyklaborð fullkomna svo þessa vönduðu fartölvu.
Þú getur auðveldlega virkjað gervigreindarbætta Windows Copilot+ aðstoðarmanninn með Copilot takkanum á lyklaborðinu. Vefsímtöl eru einnig afgreidd vel þökk sé FHD AI vefmyndavélinni og þremur AI hljóðnemum með Acer PurifiedVoice tækni.
- AMD Ryzen AI 5-340 AI, 6-kjarna 12-þráða, 4.8GHz Turbo örgjörvi, 59 TOPS Total
- Sérhæfður Ryzen AI NPU gervigreindar örgjörvi með allt að 50 TOPS
- Copilot+PC fartölva með nýjustu AI gervigreindar möguleikum frá Microsoft
- AMD Radeon™ 840M Graphics 4-kjarna AMD FreeSync skjákjarni
- 16GB LPDDR5x 8533MHz Dual Channel vinnsluminni
- 512GB NVMe PCIe Gen 4.0 x4 M.2 hraðvirkur SSD geymsludiskur
- 14" FHD+ IPS 120Hz 16:10 skjár með 100% sRGB litadýrð
- Wi-Fi 6E AX Dual-Band 2x2 þráðlaust net og Bluetooth 5.3 tengingar
- Dual 2.0 Acer TrueHarmony™ hátalarar og þrír AI hljóðnemar
- Acer PurifiedVoice 2.0 tækni bætir AI míkrafón sem lokar á bakgrunnshljóð
- FHD 1080p IR Windows Hello AI vefmyndavél með Privacy shutter
- Acer PurifiedView 2.0 AI tækni sem sérstillir myndgæði og skerpu í rauntíma
- 2x USB4-C Thunderbolt4 PD3.0 65W dokkutengi
- 2x USB 3.2, HDMI 2.1, 3.5mm Audio jack og microSD kortalesari
- Allt að 18.5 klukkustunda rafhlöðuending og 65W hraðhleðsla
- 65W USB-C PD hraðhleðslutæki fylgir með
- AcerSense tækni sem fínstillir rafhlöðuendingu, geymslu ofl.
- Öll úr fisléttu Anodized áli, aðeins 1,25kg og 15,9mm þunn
- Baklýst lyklaborð og allt að 180° halla á skjá
- Windows 11 Home stýrikerfi með Copilot+PC möguleikum
- Copilot+PC hnappur á lyklaborði, AI gervigreindar aðstoðarmaður!
Copilot+ PC fartölva
allt að 50 billjón ai npu aðgerðir á sekúnduBúin sérstökum Copilot-hnappi á lyklaborðinu og stuðningi við nýjustu Windows 11 Copilot+ gervigreindareiginleikana sem vinna beint í tölvunni:
Recall Þitt eigið ljósmyndaminni. Finndu hvað sem er í sögunni þinni án þess að senda gögn í skýið – allt geymt af öryggi í tölvunni.
Click to Do Birtir flýtiaðgerðir út frá því sem er á skjánum. Breytir, endurskrifar eða vinnur með texta og myndir með örfáum smellum.
Merkingarleit (Semantic Search) Finnur skrár út frá lýsingu á innihaldi (t.d. „Excel skjalið með grillveislunni“) án þess að muna nákvæmt skráarheiti.
AI-aðstoð í Stillingum Stjórnaðu tölvunni með einföldum skipunum eins og „gera músarbendilinn stærri“ og tölvan framkvæmir það fyrir þig.
Cocreator Teiknaðu einfalda skissu og gervigreindin umbreytir henni í fullkomna mynd eða listaverk í rauntíma.
Restyle & Super Resolution Breyttu stíl mynda á listrænan hátt og bættu gæði eldri eða lágupplausnar mynda með gervigreind.
Live Captions Lifandi skjátextar í rauntíma – meðal annars á íslensku og mörgum öðrum tungumálum.
Windows Studio Effects Fjarlægðu bakgrunn, lagfærðu augnsamband, hreinsaðu raddir og bættu fjarfundi með gervigreind í rauntíma.
Fylgihlutir og hliðstæðar vörur
You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.
We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.