Internal Reference:
NX.JP0ED.00G
Ný kynslóð fartölva með hröðum AI NPU, sjálfstæðum gervigreindarhraðli sem skilar allt að 50 billjón gervigreindaraðgerðum á sekúndu. Örgjörvinn skilar allt að 59 TOPS heildarafköstum fyrir vinnslu sem nýtir gervigreind. Gervigreindarvinnsla beint í tölvunni getur aukið hraða og öryggi við notkun hjálparforrita, myndvinnslu, samskipti og önnur verkefni, án þess að öll vinnslan þurfi að fara fram í gegnum internetið.
Glæsileg ný kynslóð þunnrar og léttrar Aspire 16 AI fartölvu frá Acer með stórum 16" WUXGA OLED skjá í 16:10 hlutföllum. OLED skjárinn skilar djúpum svörtum litum, góðri skerpu og líflegum litum fyrir vinnu og afþreyingu. Acer TrueHarmony hljóðkerfi og Acer PurifiedVoice tækni hjálpa til við að bæta hljóðgæði í netfundum og draga úr óþarfa bakgrunnshljóði. FHD vefmyndavél með Privacy Shutter myndavélarloki hentar vel fyrir myndsímtöl, á meðan tvö USB4 tengi, tvö USB-A tengi, HDMI og microSD kortalesari bjóða upp á fjölbreytta tengimöguleika. Þunn álhönnun og baklýst lyklaborð fullkomna svo þessa vönduðu fartölvu.
Þú getur auðveldlega virkjað gervigreindarbætta Windows Copilot+ aðstoðarmanninn með Copilot takkanum á lyklaborðinu. Vefsímtöl eru einnig afgreidd vel þökk sé FHD vefmyndavélinni og innbyggðum hljóðnemum með Acer PurifiedVoice tækni.
- AMD Ryzen AI 7 345 6-kjarna 12-þráða örgjörvi með allt að 4,6GHz Boost hraða
- Sérhæfður AMD Ryzen AI NPU gervigreindarhraðall með allt að 50 TOPS
- Allt að 59 TOPS heildarafköst fyrir vinnslu sem nýtir gervigreind
- Copilot+ PC fartölva með gervigreindareiginleikum frá Microsoft
- AMD Radeon 840M skjákjarni fyrir vinnu, streymi og afþreyingu
- 16GB LPDDR5x innbyggt vinnsluminni fyrir lipra fjölvinnslu
- 512GB NVMe PCIe Gen4 hraðvirkur M.2 SSD geymsludiskur
- 16" FHD+ 2048x1280 OLED skjár með 16:10 skjáhlutfalli
- 120Hz endurnýjunartíðni fyrir mýkri og jafnari myndbirtingu
- OLED skjár með 95% DCI-P3 litasviði og djúpum svörtum litum
- FHD 1080p vefmyndavél með Privacy Shutter myndavélarloki
- Acer PurifiedView tækni sem bætir myndgæði í myndsímtölum
- Acer PurifiedVoice tækni sem dregur úr bakgrunnshljóði
- Tveir Acer TrueHarmony hátalarar fyrir skýra hljóðupplifun
- Wi-Fi 6E þráðlaust net og Bluetooth 5.3 þráðlausar tengingar
- 2x USB4 Thunderbolt 4 dokkutengi fyrir gögn, skjátengingu og hleðslu
- 2x USB-A 3.2 tengi, HDMI skjátengi og 3,5 mm hljóðtengi
- MicroSD kortalesari fyrir einfaldan flutning og aukið geymslupláss
- Baklýst lyklaborð með Copilot og AcerSense tökkum
- Lyklaborð í fullri stærð með innbyggðu talnaborði
- 65Wh rafhlaða með allt að 14.5 klukkustunda rafhlöðuendingu
- Styður 65W USB-C Power Delivery hraðhleðslu
- 65W USB-C hleðslutæki fylgir ekki með, sjá tengdar vörur
- Sterkbyggð álhönnun, örþunn aðeins 15,9mm!
- Fislétt fartölva sem vegur aðeins 1,55kg!
- Windows 11 Home stýrikerfi með Copilot+PC möguleikum
- Copilot+PC hnappur á lyklaborði, AI gervigreindar aðstoðarmaður!
Copilot+ PC fartölva
allt að 50 billjón ai npu aðgerðir á sekúnduBúin sérstökum Copilot-hnappi á lyklaborðinu og stuðningi við nýjustu Windows 11 Copilot+ gervigreindareiginleikana sem vinna beint í tölvunni:
Recall Þitt eigið ljósmyndaminni. Finndu hvað sem er í sögunni þinni án þess að senda gögn í skýið – allt geymt af öryggi í tölvunni.
Click to Do Birtir flýtiaðgerðir út frá því sem er á skjánum. Breytir, endurskrifar eða vinnur með texta og myndir með örfáum smellum.
Merkingarleit (Semantic Search) Finnur skrár út frá lýsingu á innihaldi (t.d. „Excel skjalið með grillveislunni“) án þess að muna nákvæmt skráarheiti.
AI-aðstoð í Stillingum Stjórnaðu tölvunni með einföldum skipunum eins og „gera músarbendilinn stærri“ og tölvan framkvæmir það fyrir þig.
Cocreator Teiknaðu einfalda skissu og gervigreindin umbreytir henni í fullkomna mynd eða listaverk í rauntíma.
Restyle & Super Resolution Breyttu stíl mynda á listrænan hátt og bættu gæði eldri eða lágupplausnar mynda með gervigreind.
Live Captions Lifandi skjátextar í rauntíma – meðal annars á íslensku og mörgum öðrum tungumálum.
Windows Studio Effects Fjarlægðu bakgrunn, lagfærðu augnsamband, hreinsaðu raddir og bættu fjarfundi með gervigreind í rauntíma.
Fylgihlutir og hliðstæðar vörur
You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.
We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.