Skip to Content

Konftel Ego USB/Bluetooth Fundarsími

9,990 kr 9,990 kr


Internal Reference: 910101081

Konftel Ego er nettur og meðfærilegur fundarsími sem gengur fyrir rafhlöðu og styður þráðlausa Bluetooth-tengingu með NFC tækni. Konftel Ego passar auðveldlega í ferðatöskuna sem fylgir með og er fullkominn fyrir ferðalög. Þú getur tengt hann við tölvuna þína með USB fyrir myndbandsfundi eða notað Bluetooth með NFC tækni fyrir þráðlausa fundi.


OmniSound tækni fyrir kristaltært hljóð bætir gæði fjarskiptafunda, hvort sem þú vinnur einn í hótelherbergi eða með allt að sex þáttakendum í fundarherbergi. Hann er auðveldur í notkun með einfalda stýringu og LED vísir sem sýnir hvaða virkni er í notkun. Fundarsíminn er með 3,5mm jack hljóðtengi fyrir heyrnartól. Endurhlaðanleg rafhlaða sem veitir allt að 15 klukkustunda taltíma og allt að 60 klukkustunda í biðtíma.


Tækið sameinar afar næmt 360° hljóðnema með bergmálsjöfnun, bakgrunnshljóðsíun og fleira. Það gerir fólki kleift að hreyfa sig frjálslega um herbergið, tala og ræða saman, án þess að tapa hljóðgæðum. Hentar fyrir Microsoft Teams, Cisco Webex, Zoom, Google Hangouts, Avaya IX Workplace, Unify Circuit og fleiri.


Hægt að sækja Konftel Upgrade Utility og rekla hér.

  • Lítill og fyrirferðalítill USB/Bluetooth fundarsími
  • Hentar vel fyrir fjarvinnu, fundarherbergi eða fundarsali
  • Glæsilegt OmniSound hljóðkerfi með HD hljómgæðum
  • Þráðlaus símtöl í gegnum Bluetooth með NFC tækni
  • 6x takkar á fundarsíma, microUSB og 3.5mm jack tengi
  • Allt að 15 klst rafhlaða í samtölum, allt að 60 klst í biðtíma
  • Virkar með Microsoft Teams, Zoom, Google Hangouts o.fl.
  • Fyrirferðalítil ferðartaska fylgir með ásamt USB kapal

You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.

We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.

Nýlega skoðað

 
Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.