Skip to Content

Turtle Beach Stealth 700 MAX Gen 3 þráðlaus PS5 Multiplatform leikjaheyrnartól með AI hljóðnema, svört

49,990 kr 49,990 kr


Internal Reference: TBS-3101-05

Turtle Beach eru mættir á leikjamarkaðinn með nýjar og glæsilegar vörur, eitt af þeim er 3. kynslóðin af Stealth 700 leikjaheyrnartólunum. Inniheldur fullkomna eyrnarpúða úr vefnuðu efni með mjúku memory-foam sem veitir þægindi allan daginn. Eyrnarskálar með ProSpecs™ tækni sem gerir sérstakt ráð fyrir gleraugum og gefa eftir þar sem þau liggja. Fislétt hönnun, endingargott og mjúkt höfuðband sem passar fullkomlega á haus fyrir lengri spilun.


Turtle Beach® Stealth™ 700 er lúxus þráðlaus heyrnartól sem færir þér bestu eiginleikana í leikjaheiminn fyrir PlayStation®, Windows PC, Mac®, Steam Deck og farsíma. Útbúið með Multiplatform tækni, Dual Crossplay 2.4GHz þráðlausa móttakara og Bluetooth 5.2 tengimöguleikar. Stealth™ 700 er sérhannað fyrir leikjaspilun á bæði leikjavélum og snjallsímum, með að nota sér "QuickSwitch" takkann sem er staðsettur á heyrnartólunum er auðvelt að skipta á milli tækja. Forstillingartakki fyrir hljóð, (Bass Boost, Signature Sound, Treble Boost og Vocal Boost). Auka forstillingartakki fyrir enn meiri stýringu á Multimedia, Game/Chat, AI Mic Reduction, ofl. Advanced Superhuman Hearing tækni, sem hægt er að stjórna og stilla í þrjú mismunandi stigum. Nákvæmir og magnaðir dual 60mm Eclipse™ reklar með Spatial Sound hljóðtækni ásamt Waves 3D Audio hljóðtækni og High-Fidelity 24-bit audio fyrir PC. Innfelldur Flip-to-Mute omni-directional AI hljóðnemi með Noise Reduction sem býður upp á mjög skýrt hljóð og hljóðeinangrun.


Ótrúleg rafhlöðuending með allt að 80 klukkustundir, sem er bestur í sínum klassa, að auki er quick-charge tækni sem skilar hraðhleðslu svo þú getur hoppað beint aftur í leikinn eftir smá hleðslu! Til að fínstilla hljóðgæði enn betur er hægt að sækja Swarm II forritið fyrir PC, iOS eða Android, þar getur þú kveikt á Superhuman Hearing®, skipt á milli hljóð og EQ forstillingar eða stjórnað EQ stillingunum sjálfur og margt fleira eins og að fínstilla hljóð frá AI hljóðnemanum svo þú sért ekki hrópandi án þess að vita það!

  • 3. kynslóðin af lúxus Turtle Beach® Stealth™ 700 leikjaheyrnartólunum
    • PS5, Steam Deck, Windows, MacOS, iOS & Android samhæfing
  • Endingargóð og sterkbyggð höfuðspöng úr stáli með memory-foam púða úr leðri
    • Eyrnarpúðarnir nota ProSpecs™ tækni sem hentar fólki með gleraugu
    • Eyrnarpúðar úr hybrid leðri, vefnaðu efni og mjúku memory-foam
  • Magnaðir 60mm Eclipse™ Dual Neodymium segulreklar með Hi-Fi stuðning fyrir PC
    • Allt að 10-40.000Hz tíðnissvið, High-Fidelity (Hi-Fi Audio) 24-bit, 96kHz
  • Advanced Superhuman Hearing tækni, sem er hægt að stilla í þrjú mismunandi stigum
    • Spaital Sound fínstilling fyrir PC & PS5 ásamt Waves 3D hljóðtækni fyrir PC
  • Innfelldur Flip-to-Mute Uni-Directional hljóðnemi með AI hljóðeinangrun
    • High-Bandwidth 16-bit, 32kHz sampling rate og 10-16.000Hz tíðnissvið
  • Tengdu allt að tvö tæki samtímis með Dual þráðlaust 2.4GHz móttakara og Bluetooth® 5.2
    • QuickSwitch Multiplatform takki gerir það auðvelt með að skipta á milli tækja
  • Sérstilltu Stealth 700 Gen3 með Swarm II forritinu fyrir Windows, MacOS, iOS & Android
    • Einnig hægt að stýra með Swarm II, (Game/Chat, Mic Monitoring, Bass, Treble o.fl.)
    • Forstillingartakki: Bass Boost, Signature Sound, Treble Boost og Vocal Boost presets
    • Tvö hjól sem er hægt að sérstilla, (Multimedia, BT stýring, AI Noise Reduction ofl.)
  • Allt að 80 klukkustunda rafhlöðuending ásamt því að vera með Quick-Charge hraðhleðslu
  • 2 metra USB-C hleðslukapall & CrossPlay Dual 2.4GHz USB móttakarar fylgja með

You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.

We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.

Nýlega skoðað

 
Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.