Skip to Content

Turtle Beach Stealth 500 þráðlaus leikjaheyrnartól með hljóðnema, svört

16,990 kr 16,990 kr


Internal Reference: TBS-3103-05

Turtle Beach eru mættir á leikjamarkaðinn með nýjar og glæsilegar vörur, eitt af þeim er Stealth 500 leikjaheyrnartólin. Inniheldur fullkomna eyrnarpúða úr slitsterku leðurlíki með mjúku memory-foam efni sem veitir þægindi allan daginn. Físlétt hönnun, passa fullkomlega á haus fyrir lengri spilun, endingargott höfuðband sem fjarlægir pressupunkta ásamt því að vera með góða hljóðeinangrun.


Turtle Beach® Stealth™ 500 er þráðlaus heyrnartól sem færir þér bestu eiginleikana í leikjaheiminn fyrir PlayStation®, Windows® PC, Mac® og farsíma. Útbúið með Multiplatform tækni, 2.4GHz þráðlaust og Bluetooth 5.2 tengimöguleikar. Stealth™ 500 er sérhannað fyrir leikjaspilun á bæði leikjavélum og snjallsímum, með að nota sér "QuickSwitch" takkann sem er staðsettur á heyrnartólunum er auðvelt að skipta á milli tækja. Forstillingartakki fyrir hljóð, (Bass Boost, Signature Sound, Treble Boost og Vocal Boost). Advanced Superhuman Hearing tækni, sem hægt er að stjórna og stilla í mismunandi stigum. Nákvæmir 50mm Nanoclear™ reklar með Spatial Sound hljóðtækni og Innfelldur Flip-to-Mute omni-directional hljóðnemi sem býður upp á mjög skýrt hljóð.


Ótrúleg rafhlöðuending með allt að 40 klukkustundir, sem er bestur í sínum klassa, að auki er quick-charge tækni sem skilar hraðhleðslu svo þú getur hoppað beint aftur í leikinn eftir smá hleðslu! Til að fínstilla hljóðgæði enn betur er hægt að sækja Swarm II forritið fyrir PC, iOS eða Android, þar getur þú kveikt á Superhuman Hearing®, skipt á milli hljóð og EQ forstillingar eða stjórnað EQ stillingunum sjálfur og margt fleira eins og að fínstilla hljóð frá hljóðnemanum svo þú sért ekki hrópandi án þess að vita það!

  • Turtle Beach Stealth 500 leikjaheyrnartól með 20-20.000Hz tíðnissvið
  • Eyrnapúðar úr gæða slitsterku leðurlíki með mjúku Memory-Foam efni
  • Físlétt með fljótandi höfuðspöng, þú munt gleyma að þú sért með þau á þér!
  • Hágæða 50mm Neodymium segulreklar með Spatial Sound hljóðtækni
  • Innfelldur Flip-to-Mute Omni-Directional hljóðnemi fyrir skýrari hljóð
  • Tengdu allt að tvö tæki samtímis með þráðlaust 2.4GHz og Bluetooth® 5.2
  • QuickSwitch Multiplatform takki gerir það auðvelt með að skipta á milli tækja
  • Forstillingartakki fyrir hljóð, (Bass Boost, Signature Sound, Treble Boost og Vocal Boost)
  • Advanced Superhuman Hearing tækni, sem hægt er að stilla í mismunandi stigum
  • Allt að 40 klst. rafhlöðuending ásamt því að vera með Quick-Charge hraðhleðslu
  • Virkar með PS4, PS5, Windows PC, MacOS, iOS & Android snjallsíma ásamt fleiri!
  • Sérstilltu heyrnartólin með Swarm II forritinu fyrir Windows 11, MacOS, iOS & Android
  • 70cm USB-A í C hleðslukapall og þráðlaus USB móttakari fylgir með

You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.

We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.

Nýlega skoðað

 
Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.