Skip to Content

Lenovo Yoga Slim 7 AI+ fartölva, 14.5" OLED 3K Touch, X Elite 78-100 AI 32GB 1TB W11ARM, Cosmic Blue

279,990 kr 279,990 kr


Internal Reference: 83ED0008MX-TT

Ný kynslóð fartölva með hröðum AI NPU, sjálfstæðum AI gervigreindar örgjörva sem skilar allt að 45 billjón AI aðgerðum á sekúndu sem er mikilvæg viðbót í dag þar sem hjálparforrit, orðaskilningur, myndvinnsla, tónlistarvinnsla, forrit, leikir og önnur vinnsla reiðir sig sífellt meira á AI en útreikningar með AI NPU í tölvunni þinni skila meiri hraða og öryggi en tölvur sem reiða sig á internet fyrir sambærilega vinnslu.


Yoga Slim 7 Copilot+PC AI fartölvan er með með næstu kynslóð Snapdragon X Elite 12-kjarna AI örgjörva ásamt nýrri kynslóð af Wi-Fi 7 þráðlausu neti ásamt 14.5" 3K OLED 90Hz Dolby Vision með Display HDR True Black 600 anti-fingerprint snertiskjá úr gleri. Þar að auki mun öflugt Dolby Atmos 4.0 hljóðkerfi með innbyggðum bassa skila frábærum hljómgæðum þegar þú slappar af yfir bíómynd. Nýju Yoga Slim 7 AI fartölvurnar eru úr Sandblásnu Anodized áli sem er í senn fislétt og 3x sterkara en venjulegt ál. Þó hún sé örþunn og fislétt aðeins 1280 grömm er hún grjóthörð með fallvörn að hernaðarstaðli og allt að 22 klst rafhlöðuendingu sem endist í nokkurra daga vinnu án hleðslu og er því frábær fyrir fólk á ferðinni sem gerir miklar kröfur!


Þú getur auðveldlega virkjað gervigreindarbætta Windows Copilot+ aðstoðarmanninn með Copilot takkanum á lyklaborðinu. Vefsímtöl eru einnig afgreidd vel þökk sé FHD vefmyndavélinni og dual hljóðnemanum.

  • Snapdragon X Elite 78-100 AI 12-kjarna 3,4GHz örgjörvi
    • Qualcomm Hexagon AI NPU gervigreindar örgjörvi með allt að 45 TOPS
  • 32GB LPDDR5x 8448MHz Dual Channel vinnsluminni
  • 1TB NVMe PCIe Gen4 hraðvirkur M.2 SSD geymsludiskur
  • 14.5" 3K OLED 90Hz 16:10 FactoryCalib. Dolby Vision gler snertiskjár
  • DisplayHDR True Black 600, 1000nits og 100% P3/sRGB litaskala
  • FHD 2MP IR Windows Hello vefmyndavél með Privacy E-Shutter
  • 4.0 Dolby Atmos Smart Amplifier 8W RMS hljóðkerfi & 4x hljóðnemar
  • 3x USB4 Type-C 40Gbps dokkutengi,(Bæði er PD3.1, DP1.4)
  • WiFi 7 BE 2x2 Dual-Band þráðlaust net og Bluetooth 5.4
  • 70Wh rafhlaða með allt að 24 klukkustunda rafhlöðuendingu
    • 65W USB-C straumbreytir fylgir með
    • Styður 65W USB-C PD hraðhleðsla með Rapid Charge Express
      • 3 klst. hleðsla á 15 mínútum!
  • Öll úr Anodized áli, fislétt aðeins 1,28kg og örþunn 12,9mm
    • Höggvarin með MIL-STD-810H military staðal
  • Windows 11 Home ARM stýrikerfi með Copilot+PC möguleikum
    • Copilot+PC hnappur á lyklaborði, AI gervigreindar aðstoðarmaður!

Copilot+ PC fartölva

allt að 45 billjón ai npu aðgerðir á sekúndu

Búin sérstökum Copilot-hnappi á lyklaborðinu og stuðningi við nýjustu Windows 11 Copilot+ gervigreindareiginleikana sem vinna beint í tölvunni:

Recall Þitt eigið ljósmyndaminni. Finndu hvað sem er í sögunni þinni án þess að senda gögn í skýið – allt geymt af öryggi í tölvunni.

Click to Do Birtir flýtiaðgerðir út frá því sem er á skjánum. Breytir, endurskrifar eða vinnur með texta og myndir með örfáum smellum.

Merkingarleit (Semantic Search) Finnur skrár út frá lýsingu á innihaldi (t.d. „Excel skjalið með grillveislunni“) án þess að muna nákvæmt skráarheiti.

AI-aðstoð í Stillingum Stjórnaðu tölvunni með einföldum skipunum eins og „gera músarbendilinn stærri“ og tölvan framkvæmir það fyrir þig.

Cocreator Teiknaðu einfalda skissu og gervigreindin umbreytir henni í fullkomna mynd eða listaverk í rauntíma.

Restyle & Super Resolution Breyttu stíl mynda á listrænan hátt og bættu gæði eldri eða lágupplausnar mynda með gervigreind.

Live Captions Lifandi skjátextar í rauntíma – meðal annars á íslensku og mörgum öðrum tungumálum.

Windows Studio Effects Fjarlægðu bakgrunn, lagfærðu augnsamband, hreinsaðu raddir og bættu fjarfundi með gervigreind í rauntíma.


You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.

We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.

Nýlega skoðað

 
Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.