Internal Reference:
NX.JNZED.00E
Ný kynslóð fartölva með hröðum AI NPU, sjálfstæðum gervigreindarhraðli sem skilar allt að 50 billjón gervigreindaraðgerðum á sekúndu. Gervigreindarvinnsla beint í tölvunni getur aukið hraða og öryggi við notkun hjálparforrita, myndvinnslu, samskipti og önnur verkefni sem nýta gervigreind, án þess að öll vinnslan þurfi að fara fram í gegnum internetið.
Glæsileg ný kynslóð þunnrar og léttrar Aspire 14 AI fartölvu frá Acer með 14" WUXGA OLED skjá í 16:10 hlutföllum. OLED skjárinn skilar djúpum svörtum litum, mikilli skerpu og 100% DCI-P3 litasviði fyrir vinnu, myndvinnslu og afþreyingu. Acer TrueHarmony hljóðkerfi og Acer PurifiedVoice tækni hjálpa til við að bæta hljóðgæði í netfundum og draga úr óþarfa bakgrunnshljóði. FHD IR Windows Hello vefmyndavél með Privacy Shutter myndavélarloki hentar vel fyrir myndsímtöl og örugga innskráningu með andlitsgreiningu.
Þú getur auðveldlega virkjað gervigreindarbætta Windows Copilot+ aðstoðarmanninn með Copilot takkanum á lyklaborðinu. Vefsímtöl eru einnig afgreidd vel þökk sé FHD IR vefmyndavélinni og innbyggðum hljóðnemum með Acer PurifiedVoice tækni.
- AMD Ryzen AI 7 345 örgjörvi fyrir öfluga og lipra fjölvinnslu
- Sérhæfður AMD Ryzen AI NPU gervigreindarhraðall með allt að 50 TOPS
- Copilot+ PC fartölva með gervigreindareiginleikum frá Microsoft
- AMD Radeon skjákjarni fyrir vinnu, streymi og afþreyingu
- 16GB LPDDR5x innbyggt vinnsluminni fyrir lipra fjölvinnslu
- 512GB NVMe PCIe Gen4 hraðvirkur M.2 SSD diskur
- 14" FHD+ 1920x1200 OLED skjár með 16:10 skjáhlutfalli
- OLED skjár með 100% DCI-P3 litasviði og djúpum svörtum litum
- FHD IR Windows Hello vefmyndavél með Privacy Shutter myndavélarloki
- Andlitsgreining fyrir örugga og þægilega innskráningu
- Acer PurifiedView tækni sem bætir myndgæði í myndsímtölum
- Acer PurifiedVoice tækni sem dregur úr bakgrunnshljóði
- Tveir Acer TrueHarmony hátalarar fyrir skýra hljóðupplifun
- Wi-Fi 6E þráðlaust net og Bluetooth tengingar
- 2x USB4 tengi fyrir gögn, skjátengingu og hleðslu
- 2x USB-A tengi, HDMI og 3,5 mm hljóðtengi
- MicroSD kortalesari fyrir einfaldan flutning og aukið geymslupláss
- Baklýst lyklaborð með Copilot og AcerSense tökkum
- 65Wh rafhlaða með allt að 18,5 klst. rafhlöðuending
- Styður USB-C Power Delivery hraðhleðslu
- 65W USB-C hleðslutæki fylgir ekki með. Sjá tengdar vörur
- Þunn og létt álhönnun, 15,9mm og aðeins 1,27kg!
- Windows 11 Home stýrikerfi með Copilot+PC möguleikum
- Copilot+PC hnappur á lyklaborði, AI gervigreindar aðstoðarmaður!
Copilot+ PC fartölva
allt að 50 billjón ai npu aðgerðir á sekúnduBúin sérstökum Copilot-hnappi á lyklaborðinu og stuðningi við nýjustu Windows 11 Copilot+ gervigreindareiginleikana sem vinna beint í tölvunni:
Recall Þitt eigið ljósmyndaminni. Finndu hvað sem er í sögunni þinni án þess að senda gögn í skýið – allt geymt af öryggi í tölvunni.
Click to Do Birtir flýtiaðgerðir út frá því sem er á skjánum. Breytir, endurskrifar eða vinnur með texta og myndir með örfáum smellum.
Merkingarleit (Semantic Search) Finnur skrár út frá lýsingu á innihaldi (t.d. „Excel skjalið með grillveislunni“) án þess að muna nákvæmt skráarheiti.
AI-aðstoð í Stillingum Stjórnaðu tölvunni með einföldum skipunum eins og „gera músarbendilinn stærri“ og tölvan framkvæmir það fyrir þig.
Cocreator Teiknaðu einfalda skissu og gervigreindin umbreytir henni í fullkomna mynd eða listaverk í rauntíma.
Restyle & Super Resolution Breyttu stíl mynda á listrænan hátt og bættu gæði eldri eða lágupplausnar mynda með gervigreind.
Live Captions Lifandi skjátextar í rauntíma – meðal annars á íslensku og mörgum öðrum tungumálum.
Windows Studio Effects Fjarlægðu bakgrunn, lagfærðu augnsamband, hreinsaðu raddir og bættu fjarfundi með gervigreind í rauntíma.
Fylgihlutir og hliðstæðar vörur
You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.
We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.