Internal Reference:
UF-630003
Stór og endingargóð viðgerðarmotta sem er sérstaklega hönnuð fyrir nákvæma vinnu við rafeindatæki. Mjúkt silikon yfirborðið verndar bæði vinnuflöt og viðkvæma íhluti á meðan unnið er. Mottan er sveigjanleg, stöðug og auðvelt er að þrífa hana eftir notkun.
Á mottunni eru mörg hólf og skipulagssvæði fyrir skrúfur, varahluti, bitasett, pinsettur og önnur smáverkfæri. Einnig eru sérstök göt fyrir skrúfjárn sem halda þeim uppréttum og innan seilingar. Þetta gerir viðgerðarvinnu snyrtilegri, öruggari og skilvirkari.
Mottan er hitaþolin og hentar því vel við lóðvinnu, hitablástur og almenna viðhalds- eða viðgerðarvinnu. Hún þolir allt að um 200°C í lengri tíma og allt að 450°C í stutta stund. Ekki er mælt með því að beina miklum hita lengi á sama punkt.
Helstu eiginleikar:
- Fjölnota viðgerðarmotta fyrir rafeindatæki
- Úr mjúku og sveigjanlegu silikoni
- Hitaþolin, og endingargóð
- Hólf fyrir skrúfur, smáhluti og verkfæri
- Sérstök göt fyrir skrúfjárn
- Verndar vinnuborð og íhluti gegn rispum
- Hentar fyrir farsíma-, tölvu- og smáraftækjaviðgerðir
- Auðvelt að rúlla saman eða geyma þegar hún er ekki í notkun
Tæknilegar upplýsingar:
- Efni: Silikon
- Stærð: 450 × 300 mm
- Þyngd: Um 560 g
- Hitaþol: Um 200°C í lengri tíma
- Hámarks skammvinnt hitaþol: Um 450°C
Fylgihlutir og hliðstæðar vörur
You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.
We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.