Skip to Content

Nothing Phone (3a) Pro 5G 12+256GB, Svartur

89,990 kr 89,990 kr


Internal Reference: A10400166

Taktu farsímaupplifun þína á næsta stig með Nothing Phone (3a) Pro, þar sem nýsköpun mætir innsæi. Snillingarnir í Nothing hafa með Phone (3a) og (3a) Pro fært mörkin yfir hvað er mögulegt með hagkvæmari farsímum með sinni einstöku hönnun sem ýtir undir sköpun og einfaldar daglegt líf.

Upplifðu hina einstöku Glyph ljósatækni sem veitir þér upplýsingar frá símanum jafnvel án hljóðs. Stilltu mismunandi ljósamynstur og hljóð fyrir tengiliði, tengdu ljósin við tímatöku, láttu ljósin dansa í takt við tónlistina eða fylgstu með hversu langt er í næsta viðburð á dagatalinu.

Hvað gerir (3a) Pro einstakann?:

  • Kraftur sjónpípulinsunnar (e. periscope lens):
    • Leystu úr læðingi þinn innri ljósmyndara með sjónpípulinsu símans, sem hingað til hefur yfirleitt bara fundist í flaggskipssímum! Linsan nær ótrúlegum smáatriðum með miklum skýrleika með 3x optical zoom og allt að 60x ultra zoom! Með þessari linsu verður hver einasta mynd meistaraverk!
  • "Essential Space" hnappur:
    • Styttri leið að því sem skiptir þig mestu máli. Með "Essential space" hnappinum getur þú smellt einu sinni til að taka skjáskot, heldur inni til að taka upp rödd þína og tvísmellir til að skoða "Essential space".
    • Gervigreind geymir svo skjáskot þín og raddupptökur og flokkar þau niður til að halda betur um hugmyndir, hluti sem þú þarft að muna eftir eða hvað sem þér dettur í hug sem einfaldar þitt daglega líf.
  • Hágæða myndavélakerfi:
    • Við höfum minnst á sjónpípulinsuna en óháð henni er myndavélakerfi símans frábært. Heilsteypt kerfi sem hannað er fyrir hágæða afköst á geggjuðu verði! Taktu skýrar og líflegar myndir og myndbönd með 50MP myndavélum að framan og aftan!
  • Nothing Phone (3a) vs. (3a) Pro:
    • Þó báðir þessir símar séu glæsilegir og deili Nothing DNA-inu tekur (3a) Pro næsta skref í myndvinnslu.
    • Helsti munur:
      • Periscope Telephoto Linsa: (3a) Pro er með sjónpípulinsu fyrir enn betra zoom sem finnst yfirleitt einungis á flaggskipssímum!
      • Öflugari myndvinnsla: (3a) Pro hefur enn öflugari myndvinnslukerfi sem skilar enn betri ljósmyndum.
      • (3a) Pro kemur með 12GB vinnsluminni og 256GB geymsluplássi
      • Útlitsmunur.
  • Nothing OS 3:
    • Fislétt Nothing OS 3 stýrikerfi sem er fínstillt útgáfa af Android 15 ásamt ótal möguleikum á persónulegri sérstillingu með sérsniðnum Nothing viðmótsgræjum.
  • Íkonísk hönnun og vistvæn framleiðsla:
    • Hin einstaka og íkóníska gegnsæa hönnun Nothing símanna er framleidd að miklu leiti úr endurunnu efni og hefur Nothing sett sér það markmið að stuðla við sjálfbærni.

  • 6.7'' FHD+ Flexible AMOLED 120Hz 3000nits HDR10+ snertiskjár
  • Octa Core Snapdragon 7s Gen3 5G örgjörvi, Hexagon NPU / AI Engine
  • 12GB LPDDR5 hraðara vinnsluminni og 256GB UFS 3.1 ofur hratt geymslupláss
  • Dual 50MP XDR 4K, 8MP UW, OIS, EIS, Auto Focus og allt að 120fps
  • 50MP 4K@30hz sjálfumyndavél ásamt 8MP Ultra-Wide bakmyndavél
  • Brautryðjandi Glyph viðmót veitir nýja samskiptaleið til notanda
  • USB-C tengi, styður Type-C hljóðtengingu, Dual SIM Standby (DSS)
  • Styður 50W PD3.0 hraðhleðslu, hleðsla út daginn á aðeins 20 mínútum!
  • 5G háhraða farsímanet, WiFi 6 þráðlaust net, Bluetooth 5.3 og NFC
  • Fingrafaraskanni í skjá og hraðvirk Face Unlock tækni
  • Glyph forritanlegt LED viðmót fyrir hringingar, tilkynningar ofl. ofl.
  • Nothing OS, fislétt stýrikerfi með það besta af Android og án ruslforrita
  • Stýrðu forritum með flýtihnöppum, að opna hurð í Tesla er bara einn hnappur
  • Örþunnur, aðeins 8,55mm og 190gr, IP64 vatns- og rykvarinn

Umhverfisvæn atriði:

- Yfir 60% af plastefni sjálbært.

- 100% endurunnið ál í miðju ramma og öllum tökkum.

- 100% endurunnið tin á 7 rafrásum.

- Endurunnið stál í 18 mismunandi stálíhlutum.

- Pakkningar án plasts og búnar til úr endurunnum efnum (60% endurunnar trefjar)

You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.

We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.

Nýlega skoðað

 
Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.