Internal Reference:
A10400279
Phone (4a) er glæsileg nýjung frá Nothing með Qualcomm Snapdragon 7s Gen 4 8-kjarna örgjörva og fisléttu Nothing OS 4.1 stýrikerfi (fínstillt útgáfa af Android 16). Síminn býður upp á óteljandi möguleika á persónulegri sérstillingu með sérsniðnu Nothing viðmóti á hraðvirkum og björtum 120Hz 1.5K AMOLED Corning Gorilla Glass 7i Always-on skjá sem sýnir yfir milljarð liti.
Nothing býður upp á nýstárlega ljósmyndaupplifun með þremur vönduðum myndavélum: 50MP aðalvél, 50MP Periscope aðdráttarlinsu og 8MP víðvísislinsu, ásamt 32MP sjálfumyndavél. Síminn er hannaður úr sterkbyggðum efnum, er aðeins 8,6 mm að þykkt og 204,5 gr að þyngd. Hann er IP64 vottaður (rykþéttur og slettuvörður).
Glyph Bar og Essential AI
Leggðu símann niður og upplifðu brautryðjandi Glyph Bar ljósatækni (63 mini-LED ljós) sem veitir þér upplýsingar jafnvel án hljóðs. Stilltu ljósamynstur fyrir tengiliði, fylgdu tímatöku eða láttu ljósin dansa við tónlistina.
Essential er safn AI‑tækja í Nothing OS sem hjálpa þér að fanga, muna og skapa:
- Essential Key: Nýr takki á hliðinni til að taka upp skjáinn eða raddglósur á ferðinni.
- Essential Search: Ný AI-knúin leitarvél innbyggð í stýrikerfið.
- Essential Voice: Breytir hugsunum í skýran texta, lagfærir tölvupósta og fjarlægir óþarfa orð.
TrueLens Engine 4 með AI
- Ultra XDR: Sameinar allt að 13 RAW-ramma fyrir ótrúleg smáatriði og 12x meiri birtu í deilingum.
- 12-laga AI Semantic Segmentation: Greinir mismunandi hluta myndarinnar (fólk, bakgrunn) í rauntíma fyrir nákvæmari vinnslu.
- AI Eraser: Fjarlægðu óæskilega hluti eða fólk úr myndum með einni snertingu í Nothing Gallery.
Áður óþekktur aðdráttur í þessum flokki! Phone (4a) er eini síminn í sínum flokki með 50MP OIS periscope myndavél. Hann býður upp á 3.5x optískan aðdrátt (periscope), sem er fullkominn fyrir andlitsmyndir, og notar GenAI Ultra Zoom tækni ásamt digital zoom til að ná allt að 70x aðdrætti, sem sýnir þér smáatriði sem þú gætir ekki séð með berum augum. Þetta gerir símanum kleift að fanga ótrúleg smáatriði í hvaða fjarlægð sem er.
Tækniupplýsingar:
- Skjár: 6.78" 1.5K Flexible AMOLED, 120Hz, 4500 nits peak, HDR10+, Gorilla Glass 7i.
- Örgjörvi: Qualcomm Snapdragon 7s Gen 4 (4nm), Octa-Core 2.7GHz, Hexagon NPU.
- Minni & geymsla: 12GB LPDDR4x vinnsluminni og 256GB UFS 3.1 geymslupláss.
- Myndavélar að aftan:
- 50MP Aðalvél (f/1.9, OIS, 1/1.57" skynjari).
- 50MP Periscope (f/2.9, 3.5x optískur zoom, OIS, allt að 70x GenAI zoom).
- 8MP Ultra-Wide (f/2.2, 120° FOV).
- Sjálfumyndavél: 32MP (f/2.2, 89° sjónarhorn).
- Myndband: 4K@30fps / 1080p@120fps (Slow-mo).
- Rafhlaða & hleðsla: 5080 mAh rafhlaða. Styður 50W hraðhleðslu (50% á 22 mín) og 7.5W Reverse hleðslu.
- Hljóð: Dual 2.0 Stereo hátalarar með HD-hljóðnemum.
- Tengingar: 5G, WiFi 6 AX, Bluetooth 5.4, NFC, USB-C 2.0.
- Varnir: IP64 vottun (ryk- og slettuþéttur).
- Stýrikerfi: Nothing OS 4.1 (Android 16) – Engin ruslforrit (No bloatware).
- Mál: 163.9 x 77.5 x 8.6 mm. Þyngd: 204.5 gr.
Umhverfisvæn hönnun:
Yfir 30% sjálfbært plast, 100% endurunnið ál í ramma og tökkum, og 100% endurunnið tin í rafrásum. Pakkningar eru 99% úr endurunnum trefjum og algjörlega án plasts.
Fylgihlutir og hliðstæðar vörur
You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.
We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.