Internal Reference:
SM-R390NZAAEUB
Fullkomið úr fyrir íþróttir, útivist eða almennanotkun frá Samsung með 1.96" HD AMOLED snertiskjá. Frábær sílikon ól sem andar vel. Eiginleikar til mælinga á heilsu með lífkennaskynjaranum þar sem þú byrjar mælingar á súrefnismettun, hjartslætti, blóðþrýstingi, stressi og svefni með einum smelli. Það fylgist einnig með skrefafjölda, vegalengdum og brenndum kaloríum. Þetta hjálpar notendum að halda yfirsýn yfir líkamlega virkni og heilsu, sem gerir þeim kleift að aðlaga æfingarútínuna að eigin markmiðum.
Tengdu og stjórnaðu Samsung Galaxy Fit 3 snjallúrið við Android snjallsímann þinn með snjallforritinu. Galaxy Fit 3 spyr hvort þú þarft aðstoð þegar það greinir fall með innbyggðum skynjurum, þar á meðal barometer. Í öðrum neyðartilvikum geturðu ýtt á hliðartakkann 5 sinnum til að láta neyðartengiliði þína vita. Skráðar læknisfræðilegar upplýsingar þínar munu birtast á læsiskjánum þegar aðstoð kemur. IP68 5ATM vökvaþolið og endurhlaðanleg rafhlaða með USB segultenginu.
- Stór 1.6" HD 256x402px AMOLED snertiskjár
- 16MB vinnsluminni og 256MB Flash minni
- Fylgstu með hjartslætti, blóðþrýstingi, skrefum, brenndum kaloríum o.fl.
- Frábær svefnmælir ásamt stressmælingu með öndunaræfingum
- Tengdu við snjallsímann þinn og stjórnaðu með snjallforritinu.
- Fullur stuðningur við alla Android snjallsíma.
- Fáðu tilkynningar úr símanum beint í úrið með Bluetooth 5.3
- Sjáðu skilaboð, símtöl, viðburða áminningar og fleira
- Fullkominn sporthamur með yfir 100 mismunandi stillingar
- Falleg, sterkbyggð og endingargóð skífa úr sandblöstuðu áli
- Fislétt skífa, aðeins 18.5gr (án ólar) og fellur vel að hendi
- IP68, 5 ATM, 50 metra vatnsþolið fyrir sundæfingar og fleira
- 13 daga rafhlöðuending í notkun, hleður upp í 65% á aðeins 30 mín
Fylgihlutir og hliðstæðar vörur
You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.
We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.