Skip to Content

Lenovo Flex 5 2in1 AI+ fartölva, 14" FHD+ Ryzen AI-5-340 16/512GB W11, Luna Grey

169,990 kr 169,990 kr


Internal Reference: 83KT0002MX-TT

Ný kynslóð fartölva með hröðum AI NPU, sjálfstæðum AI gervigreindar örgjörva sem skilar allt að 50 billjón AI aðgerðum á sekúndu sem er mikilvæg viðbót í dag þar sem hjálparforrit, orðaskilningur, myndvinnsla, tónlistarvinnsla, forrit, leikir og önnur vinnsla reiðir sig sífellt meira á AI en útreikningar með AI NPU í tölvunni þinni skila meiri hraða og öryggi en tölvur sem reiða sig á internet fyrir sambærilega vinnslu.


Nýja Flex 5 2-in-1 14” AI fartölvan er úr Sandblásnu Anodized áli sem er í senn fislétt og þrisvar sinnum sterkara en venjulegt ál með hernaðar vottaða höggvörn,hún er með einstökum 14" IPS snertiskjá í 16:10 hlutföllum sem hægt er að snúa 360° en einnig með baklýstu lyklaborði, Windows-Hell stuðning, Dolby Audio hljóðkerfi og allt að 20 klst. Rafhlöðuendingu. Hægt að bæta við Lenovo Digital 2 penna sem fæst einnig í Tölvutek.


Þú getur svo auðveldlega virkjað gervigreindarbætta Windows Copilot aðstoðarmanninn með Copilot hnapp á lyklaborðinu.Vefsímtöl eru einnig afgreidd vel þökk sé FHD vefmyndavélinni sem kemur með Privacy shutter fyrir fullkomið öryggi.

  • AMD Ryzen AI 5 340 6-kjarna 12-þræða 4.8GHz Turbo örgjörvi
    • Sérhæfður Ryzen AI NPU gervigreindar örgjörvi með allt að 50 TOPS
    • Allt að 59 TOPS heildarafköst fyrir vinnslu sem nýtir gervigreind
    • Copilot+ PC fartölva með nýjustu AI gervigreindar möguleikum frá Microsoft
    • Innbyggður AMD Radeon 840M Graphics graffískur skjákjarni
  • 16GB DDR5 SO-DIMM 7500MHz háhraða vinnsluminni
  • 512GB PCIe M.2 NVMe 2242 SSD hraðvirkur geymsludiskur
  • 14" FHD+ (1920x1200) IPS Glossy fjölsnertiskjár
    • Styður 45% NTSC, 60Hz endurnýjunartíðni og 300nits birtustig
  • 1080p FHD IR vefmyndavél með Windows Hello stuðning og Privacy Shutter
  • Yfirgrípandi dual 4W RMS Dolby Audio hljóðkerfi, 2x 2W
  • Wi-Fi 6 2x2 þráðlaust net og Bluetooth 5.3 tengingar
  • 2x USB-C(PD 3.0 / DP 1.4), 2x USB-A, 1x HDMI 1.4b, 3.5 jack og MicroSD rauf
  • 57Wh rafhlaða með allt að 20 klukkustunda rafhlöðuendingu
    • 65W USB-C straumbreytir fylgir með
    • 65W USB-C PD hraðhleðsla með Rapid Charge Boost
      • 2 klst. hleðsla á 15 mínútum!
  • Fislétt hönnun, aðeins 1.6kg og örþunn 17.5 mm!
  • Windows 11 Home stýrikerfi með Copilot+PC möguleikum
    • Copilot+PC hnappur á lyklaborði, AI gervigreindar aðstoðarmaður!

Copilot+ PC fartölva

allt að 50 billjón ai npu aðgerðir á sekúndu

Búin sérstökum Copilot-hnappi á lyklaborðinu og stuðningi við nýjustu Windows 11 Copilot+ gervigreindareiginleikana sem vinna beint í tölvunni:

Recall Þitt eigið ljósmyndaminni. Finndu hvað sem er í sögunni þinni án þess að senda gögn í skýið – allt geymt af öryggi í tölvunni.

Click to Do Birtir flýtiaðgerðir út frá því sem er á skjánum. Breytir, endurskrifar eða vinnur með texta og myndir með örfáum smellum.

Merkingarleit (Semantic Search) Finnur skrár út frá lýsingu á innihaldi (t.d. „Excel skjalið með grillveislunni“) án þess að muna nákvæmt skráarheiti.

AI-aðstoð í Stillingum Stjórnaðu tölvunni með einföldum skipunum eins og „gera músarbendilinn stærri“ og tölvan framkvæmir það fyrir þig.

Cocreator Teiknaðu einfalda skissu og gervigreindin umbreytir henni í fullkomna mynd eða listaverk í rauntíma.

Restyle & Super Resolution Breyttu stíl mynda á listrænan hátt og bættu gæði eldri eða lágupplausnar mynda með gervigreind.

Live Captions Lifandi skjátextar í rauntíma – meðal annars á íslensku og mörgum öðrum tungumálum.

Windows Studio Effects Fjarlægðu bakgrunn, lagfærðu augnsamband, hreinsaðu raddir og bættu fjarfundi með gervigreind í rauntíma.


You can reach our customer support team by emailing info@yourcompany.example.com, calling +1 555-555-5556, or using the live chat on our website. Our dedicated team is available 24/7 to assist with any inquiries or issues.

We’re committed to providing prompt and effective solutions to ensure your satisfaction.

Nýlega skoðað

 
Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provide enough options to retrieve its content.